Siggi Matt og Edda Rún taka aftur við Reiðskóla Reykjavíkur

21.02.2012 - 16:51
Nú á haustdögum yfirtókum við aftur reksturinn á Reiðskóla Reykjavíkur. Við hófum starfsemi skólans árið 2001 en seldum hann frá okkur vorið 2010 en nú höfum við yfirtekið reksturinn aftur. Þetta kemur fram á vef Reiðskóla Reikjavíkur.
 
Skólinn er því kominn aftur heim og verður í fullri starfsemi í hesthúsi okkar að Fákabóli 3 í sumar og næstu sumur. Eins og áður verða í boði byrjendanámskeið, framhald 1, framhald 2 og gangskiptinganámskeið og er skráning hafin á fullu. Kennt verður frá klukkan 9 - 12 eða frá 13 - 16 alla virka daga. Fjögur tveggja vikna námskeið verða í sumar og eitt viku námskeið þar sem verður boðið upp á öll hefðbundin námskeið og gangskiptinganámskeið að auki.

Ekki er hægt að halda áfram starfsemi skólans án þess að allir gömlu snillingarnir verði með okkur áfram og mæta því snillingar eins og Eyrnaslapi, Linsa, Grámann og Steini fersk til starfa í byrjun júní ásamt öllum hinum.

Með okkur verður eins og ávalt góður hópur af starfsfólki og kynnum við þau nánar síðar.

Við höfum alla tíð lagt mikinn metnað í rekstur Reiðskólans og hlökkum við mikið til að hefja reksturinn á ný og eyða sumrinu með ykkur.

Kveðja, Edda Rún og Siggi Matt