Keppnisnámskeið með Sylvíu Sigurbjörnsdóttur

20.02.2012 - 07:54
Þetta námskeið mun veita góðan undirbúning fyrir komandi keppni og einstakt tækifæri til þess að byggja bæði hest og knapa upp fyrir væntanlega sigra á brautinni.  Kennt verður á föstudögum í reiðhöll  Gusts í Glaðheimum og með vorinu munu tímarnir færast út á keppnisvöllin (10 tímar).
 
Námskeiðið hest 2. mars 2012
Námskeið þetta er ætlað fyrir;
1. Knapa sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni
2. Knapa sem hafa einhverja keppnisreynslu

Kennari: Sylvía Sigurbjörnsdóttir . Verð 38.500. kr.

Athugið að takmarkaður fjöldi er í boði og fyrir vari er um að næg þátttaka náist til þess að hægt sé að halda námskeiðið.