Hæfileikaríka merin Sylvía Nótt til sölu
09.02.2012 - 09:34Má bjóða þér að kaupa Sylvíu Nótt fyrir aðeins sex hundruð þúsund krónur? Hún er með í Kynbótamati, Sköpulag 94, Hæfileikar 90, Aðaleinkunn 89. Ekki það besta í bransanum. En líklega ekki það lélegasta heldur.
Sylvía er sjö vetra kynbótameri og er lýst sem efnilegum keppnishesti og reiðhesti. Sylvíu Nótt kom í heiminn fyrir sjö árum síðan. Sama ár og nafna hennar tók þátt í Júróvisjón keppninni í Grikklandi.
Foreldrar hennar, merarinnar það er að segja, eru Glanni frá Blöndubakka og Fiona frá Neðstabæ. Liturinn hennar er Jarpur. Og nánari upplýsingar um þessa hæfileikaríku meri má nálgast hér.
Foreldrar hennar, merarinnar það er að segja, eru Glanni frá Blöndubakka og Fiona frá Neðstabæ. Liturinn hennar er Jarpur. Og nánari upplýsingar um þessa hæfileikaríku meri má nálgast hér.
Athugasemdir




