Meistaradeild Gæðingafimi
Ráslistar
08.02.2012 - 13:33Á morgun fimmtudag verður keppt í gæðingafimi í Meistaradeild í hestaíþróttum. Mótið hefst klukkan 19:30 í Ölfushöllinni. Keppendur eru í óða önn að fínpússa prógrömm sín fyrir morgundaginn og má gera ráð fyrir hverri glæsisýningunni á fætur annarri á gólfi Ölfushallarinnar.
Gæðingafimin er mikil áskorun fyrir keppendur. Þar eru allir þættir dæmdir sérstaklega og síðan heildarútlit sýningarinnar. Það sem dómararnir horfa meðal annars á er hversu margar og erfiðar æfingar parið gerir og hvernig þær eru framkvæmdar, hvernig æfingarnar blandast við gangtegundir, flæði sýningarinnar, fjölhæfni og styrkleiki gangtegunda. Knapar þurfa að sýna að lágmarki þrjár gangtegundir og fimm fimiæfingar og er einungis ein skylduæfing, en hún er opinn sniðgangur á tölti. Lengd sýningar má vera að hámarki þrjár og hálf mínúta. Sú breyting hefur orðið á frá því í fyrra að einungis 5 knapar ríða úrslit en ekki 10 eins og hefur verið undanfarin ár.
Í fyrra var það Jakob S Sigurðsson, Top Reiter/Ármót, sem sigraði gæðingafimina á hryssunni Árborgu frá Miðey og eru þau skráð til leiks á ný og munu því hefja titilvörn annað kvöld. Margar stórstjörnur eru jafnframt skráðar til leiks og munu þær eflaust veita þeim harða samkeppni og verður því spennandi að sjá hver stendur efstur á palli í lok kvölds.
Hér að neðan má sjá ráslista kvöldsins:
Nr Knapar Lið Hestur
1 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Glaumur frá Vindási
2 Sigurður Sigurðarson Lýsi Dreyri frá Hjaltastöðum
3 Artemisia Bertus Hrímnir Korgur frá Ingólfshvoli
4 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Klerkur frá Bjarnanesi
5 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá
Lækjarbotnum
6 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Díva frá Álfhólum
7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Þóra-Dís frá
Auðsholtshjáleigu
8 Viðar Ingólfsson Hrímnir Segull frá Mið-Fossum
9 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Sóllilja frá Álfhólum
10 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Þrumufleygur frá Álfhólum
11 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi
12 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
13 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrímnir frá Ósi
14 Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II
15 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum
16 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Árborg frá Miðey
17 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum
18 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II
19 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl
20 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Bergþór frá Feti
21 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Geisli frá Svanavatni
Eins og áður verður sýnt beint frá mótinu á www.meistaradeild.is og www.eidfaxi.is og hefst beina útsendingin rétt fyrir 19:30.

Athugasemdir