Fundur um fasteignagjöld hesthúsa

03.02.2012 - 15:21
Hestamannafélagið Fákur boðar til fundar nk. mánudag, 6. febrúar  kl. 18:30 í félagsheimili Fáks, um hækkun á álagningu fasteignagjalda á hesthúsum í Reykjavík.
 
Allir hesthúseigendur eru hvattir til að mæta sem og aðrir sem eiga hagsmuna að gæta.

Fulltrúar Reykjavíkurborgar sjá sér vonandi fært um að þiggja boðið og mæta á fundinn.

Hestamannafélagið Fákur,
Rúnar Sigurðsson formaður.