Risahækkun á hestamenn

Greiddi 56 þúsund í fyrra en greiðir nú 426 þúsund

01.02.2012 - 10:19
Reykjavíkurborg hefur hækkað fasteignagjöld á hesthús í borginni úr 0,22% af fasteignamati í 1,65%. Þetta er gjaldskrárhækkun upp á 750%. Hestamenn eru æfir vegna málsins.
 
Jón Finnur Hansson, framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Fáks í Víðidal, segir hækkunina koma hestamönnum í opna skjöldu. „Það er alveg gífurleg óánægja meðal hesthúsaeigenda með þessa miklu hækkun,“ segir Jón Finnur í samtali við DV.

Hilmar Magnússon hestamaður á helmingshlut í 20 hesta hesthúsi í Almannadal sem tilheyrir Fákssvæðinu. Á síðasta ári voru fasteignagjöldin af húsinu 56 þúsund krónur, en eftir hækkunina, sem tók gildi um síðustu áramót, eru gjöldin komin upp í 426 þúsund krónur á ári. Ofan á það bætist holræsisgjald fyrir húsið, sem nemur um 130 þúsund krónum á ári. Í krónum talið hækka fasteignagjöldin því um 370.000 krónur á ári, eða um 30 þúsund krónur á mánuði.
 
dv.is