Meistaradeild 2012 - ráslistar fjórgangur
24.01.2012 - 17:05Fyrsta mót Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram nú á fimmtudaginn kl 19:00 í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli. Fyrsta grein deildarinnar er fjórgangur og hafa síðustu keppendur skilað inn upplýsingum um þau hross er þeir hyggjast keppa á.
Gera má ráð fyrir hörkuspennandi keppni á fimmtudagskvöldið því margar stórstjörnur eru skráðar til leiks. Það er Hinrik Bragason, Árbakki/Norður-Götur, sem ríður á vaðið á stóðhestinum Katli frá Kvistum og er þetta frumraun þeirra félaga í íþróttakeppni.
Á eftir þeim koma mörg þaulreynd keppnishross og hátt dæmd kynbótahross sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Síðastur í braut er síðan Sigurður Sigurðarson, Lýsi, sigurvegari Meistaradeildar 2011 á stóðhestinum Loka frá Selfossi en þeir félagar unnu fjórganginn í deildinni í fyrra.
Hér að neðan má sjá rásröð keppenda:
Nr Knapar Lið Hestur
1 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Ketill frá Kvistum
2 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Penni frá Glæsibæ
3 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót Segull frá Flugumýri II
4 Ævar Örn Guðjónsson Spónn.is Þokkadís frá Efra-Seli
5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Glefsa frá Auðsholtshjáleigu
6 Elvar Þormarsson Spónn.is Þytur frá Oddgeirshólum
7 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Ganghestar / Málning Þórir frá Hólum
8 Eyjólfur Þorsteinsson Lýsi Klerkur frá Bjarnanesi
9 John Kristinn Sigurjónsson Hrímnir Indía frá Álfhólum
10 Teitur Árnason Árbakki / Norður-Götur Hængur frá Hæl
11 Eyvindur Mandal Hreggviðsson Auðsholtshjáleiga Hersveinn frá Lækjarbotnum
12 Sigurður Vignir Matthíasson Ganghestar / Málning Kall frá Dalvík
13 Guðmundur Björgvinsson Top Reiter / Ármót Hrafndynur frá Hákoti
14 Viðar Ingólfsson Hrímnir Vornótt frá Hólabrekku
15 Ólafur Ásgeirsson Spónn.is Hugleikur frá Galtanesi
16 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
17 Lena Zielinski Auðsholtshjáleiga Njála frá Velli II
18 Sara Ástþórsdóttir Ganghestar / Málning Sóllilja frá Álfhólum
19 Artemisia Bertus Hrímnir Óskar frá Blesastöðum 1A
20 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót Asi frá Lundum II
21 Sigurður Sigurðarson Lýsi Loki frá Selfossi
Forsala aðgöngumiða á mótið er hafin og er aðgangseyrir krónur 1.500 og eru miðarnir til sölu í Líflandi, Top Reiter og Baldvini og Þorvaldi, Selfossi. Á sömu stöðum er einnig hægt að kaupa ársmiða á deildina en þeir kosta krónur 5.000 og með þeim fylgir DVD diskur frá Meistaradeildinni 2011.

Athugasemdir