22 hestar drápust í bruna
23.01.2012 - 10:2622 hestar drápust þegar eldur kom upp í hesthúsi á bæ í New Jersey-fylki í Bandaríkjunum. Hestarnir voru sýningarhestar sem höfðu tekið þátt í sýningum víða um Bandaríkin. Verðmæti þeirra hleypur á tugum þúsunda dollara.
Eldurinn kom upp í hesthúsi á bæ við Lafayette í New Jersey í gær. Vel gekk að slökkva eldinn en allir hestarnir drápust.
Betty Hahn, eigandi hestanna, segir í samtali við Star Ledger að hún sé algjörlega miður sín yfir því sem gerðist. Hún segir að hesthúsið hafi verið ótryggt.
Betty Hahn, eigandi hestanna, segir í samtali við Star Ledger að hún sé algjörlega miður sín yfir því sem gerðist. Hún segir að hesthúsið hafi verið ótryggt.
mbl.is
Athugasemdir





