Styttist í að Meistaradeild 2012 hefjist
17.01.2012 - 14:36Nú styttist í að níunda mótaröð Meistaradeildar í hestaíþróttum hefjist en keppni hefst fimmtudaginn 26. janúar á fjórgangi. Í ár eins og undanfarin ár er deildin skipuð mörgum af sterkustu knöpum landsins og eru sjö heimsmeistarar skráðir til leiks í vetur.
Eingöngu fjórir knapar hafa sigrað deildina í þau átta skipti sem hún hefur verið haldin og eru þrír þeirra skráðir til leiks í vetur en gaman verður að sjá hvort nýtt nafn verður ritað á bikarinn þegar flautað verður til leiksloka föstudaginn 30. mars. Hér að neðan má sjá sigurvegara deildarinnar frá upphafi:
Meistari 2001 Sigurður Sigurðarson
Meistari 2002 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2006 Atli Guðmundsson
Meistari 2007 Viðar Ingólfsson
Meistari 2008 Viðar Ingólfsson
Meistari 2009 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2010 Sigurbjörn Bárðarson
Meistari 2011 Sigurður Sigurðarson
Sala á ársmiðum er í fullum gangi hjá liðunum og í verslunum Top Reiter, Líflandi og Baldvini og Þorvaldi á Selfossi. Ársmiðinn kostar 5.000 krónur og innifalinn í miðaverðinu er dvd diskur frá deildinni 2011. Aðgöngumiði á hvert mót deildarinnar er 1.500 krónur því er um að gera fyrir þá sem hafa í huga að mæta á flest mót deildarinnar í vetur að tryggja sér ársmiða.
Mótin eru öll haldin í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli, nema eitt en það er Skeiðmótið sem fer fram 24. mars.
Dagskrá Meistaradeildar 2012
26. janúar, fimmtudagur - Fjórgangur
9. febrúar, fimmtudagur - Gæðingafimi
23. febrúar, fimmtudagur - Tölt
8. mars, fimmtudagur - Slaktaumatölt & flugskeið 24. mars, laugardagur - Gæðingaskeið og 150m skeið - úti 30. mars, föstudagur - Lokamót Fimmgangur og verðlaunaafhendingar með grilli og fjöri

Athugasemdir