Hótel Eldhestar fá umhverfisverðlaun
16.12.2011 - 08:36Hótel Eldhestar í Ölfusi hlaut í dag umverfisverðlaun Ferðamálastofu fyrir markvissa umhverfisstefnu og sjálfbæran rekstur. Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt frá árinu 1995 til ferðaþjónustufyrirtækja eða einstaklinga í ferðaþjónustu sem þótt hafa skara framúr á sviði umhverfismála.
Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning og áminning til þeirra sem stunda ferðaþjónustu um að huga vel að umhverfinu í allri starfsemi sinni, segir í fréttatilkynningu.
Hestaleigan Eldhestar var stofnuð árið 1986. Í júní árið 2002 tóku Eldhestar í notkun lítið sveitahótel, Hótel Eldhesta. Það er búið 26 tveggja manna herbergjum og matsal sem tekur um 70-80 manns.
Hestaleigan Eldhestar var stofnuð árið 1986. Í júní árið 2002 tóku Eldhestar í notkun lítið sveitahótel, Hótel Eldhesta. Það er búið 26 tveggja manna herbergjum og matsal sem tekur um 70-80 manns.
frétt mbl.is
Athugasemdir





