Jólaleikur Landsmóts
03.11.2011 - 05:09Þrátt fyrir að Nóvember sé rétt að hefjast er létt jólastemning að læðast inn á skrifstofu Landsmóts. Við viljum því endilega minna á jólaleikinn okkar sem fór í gang um leið og miðasalan hófst. Veglegir vinningar bíða í pottinum en allir seldir miðar fram að jólum fara sjálfkrafa í pottinn.
Á Þorláksmessu fáum við okkur síðan smákökur, malt og appelsín og drögum út heppna vinningshafa. Það er til mikils að vinna því meðal vinninga eru flugmiðar til Evrópu með Icelandair, gjafabréf í Kringluna, leikhúsmiðar, inneign hjá N1, Mountain horse úlpa, hótelgisting á 2 nætur á Hilton Reykjavík Nordica og endurgreiðsla á keyptum landsmótsmiðum. Potturinn bíður því stútfullur af glæsilegum vinningum sem væri ekki amalegt að fá sem auka jólagjafir þetta árið. Húrra fyrir því!
Svo eru bara 25 dagar í fyrsta sunnudag í aðventu, styttist í jólalögin!
Svo eru bara 25 dagar í fyrsta sunnudag í aðventu, styttist í jólalögin!
frétt landsmot.is
Tengdar fréttir
Athugasemdir





