HM 2011
Sjötta gullið á HM
Bergþór Eggertsson er heimsmeistari í 250m skeiði
06.08.2011 - 12:26Bergþór Eggertsson er heimsmeistari í 250m skeiði á Lótusi frá Aldenghoor og var fyrsti sprettur hans í gær sá besti, 21,89 sek. Annar varð hinn reynslumikli skeiðknapi Guðmundur Einarsson á Sprota frá Sjávarborg á 22,10 en þeir keppa fyrir Svíþjóð.
Þriðja var hin danska Tania H. Olsen ríkjandi heimsmeistari í 100m skeiði á Sóloni frá Strö á 22,32 sek.
Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjamóti urðu í 7. -8. sæti en besti tími þeirra var 22,70 sek.
Margir þessara knapa munu reyna við gullið í 100m skeiðinu á morgun og það verður spennandi að sjá hver verður þá í besta dagsforminu.
frett lhhestar.is
Athugasemdir





