Landsmót 2011

Þórður fékk reiðmennsku - verðlaunin MYNDBAND

Knapi Landsmóts 2011

Knapi Landsmóts 2011

03.07.2011 - 17:23
Þórður Þorgeirsson fékk viðurkenningu frá Félagi tamningamanna fyrir reiðmennsku sína á mótinu. Hann sýndi hvorki meira né minna en 26 hross hér á Vindheimamelum, öll í röðum kynbótahrossa.
 
Hann sýndi m.a. heimsmeistarann Spuna frá Vesturkoti í 9,25 fyrir hæfileika sem gerir hann að hæst dæmda íslenska kynbótahrossi í heimi.

Hann þótti skara fram úr með frábærar sýningar í kynbótabrautinni, háttvís, stundvís og faglegur.

Það var Sigrún Ólafsdóttir formaður Félags tamningamanna afhenti Þórði verðlaunin.
 
frett landsmot.is