Landsmót 2011

Sigursteinn og Alfa sigruðu töltið

Alfa og Sigursteinn / Mynd Dalli.is

02.07.2011 - 21:13
Sigursteinn Sumarliðason átti frábæra sýningu á glæsihryssunni Ölfu frá Blesastöðum 1A í A-úrslitunum í töltinu í kvöld með 8,94. Annar á eftir honum var landsmótssigurvegari töltins á LM2008, Viðar Ingólfsson á Tuma frá Stóra-Hofi með 8,78 og þriðji Steingrímur Sigurðsson á Mídasi frá Kaldbak með 8,67.
 
Þessi úrslit voru mögnuð og stemningin í brekkunni gríðarleg og voru tilþrif verðlaunum með góðu klappi og hrópum. Það hlýtur að vera frábær tilfinning fyrir knapa að ríða á velli frammi fyrir mörg þúsund manns í brekkunni.

Bara frábært... og veislan heldur áfram á morgun!

Tölt A-úrslit
Sæti           Keppandi              
1           Sigursteinn Sumarliðason / Alfa frá Blesastöðum 1A        8,94       
2           Viðar Ingólfsson / Tumi frá Stóra-Hofi        8,78       
3           Steingrímur Sigurðsson / Mídas frá Kaldbak        8,67       
4           Jakob Svavar Sigurðsson / Árborg frá Miðey        8,28       
5           Hulda Gústafsdóttir / Sveigur frá Varmadal        8,22       
6           Halldór Guðjónsson / Nátthrafn frá Dallandi        8,22  
 
frett landsmot.is