Landsmót 2011

Mótið sett í kvöldsólinni

30.06.2011 - 21:23
Landsmótið var formlega sett við hátíðlega athöfn á Vindheimamelum í kvöld.
Setningarathöfnin er jafnan hátíðlegur viðburður, þar sem um 200 hesta hópreið hestamannafélaganna marserar inn á mótssvæðið á eftir fánaberum íslenska fánans.
 
Til máls tóku m.a. Svandís Svavarsdóttir menntamálaráðherra, Haraldur Þórarinsson formaður LH og Landsmóts og Gunnar Sturluson f.h. stjórnar FEIF. Haraldur formaður setti mótið formlega.

Sönghefðin er rík í Skagafirði og það fór ekki á milli mála þegar karlakórinn Heimir tók nokkur falleg lög í skagfirskri sumarsólinni, meðal annars íslenska þjóðsönginn.
 
frett landsmot.is