Veðurhorfur á landinu
Vaxandi austanátt í nótt, 13-20 með slyddu, en síðar rigningu S-til í fyrramálið en slyddu eða snjókomu eftir hádegi fyrir norðan. Lægir mjög sunnanlands undir kvöld en snýst í vestan 15-25 við S-ströndina í kvöld. Hiti víða 1 til 6 stig, en sums staðar vægt frost N-til. Gildir frá: 23 Feb 2012 01:00:00 GMT Gildir til: 24 Feb 2012 01:00:00 GMTVeðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:Norðaustan 8-13 m/s og él eða snjókoma N-til á landinu, en annars vestan 13-18 skúrir eða slydduél. Dregur úr vindi og úrkomu seinnipartinn. Vægt frost inn til landsins en frostlaust með S-ströndinni.
Á laugardag:
Suðvestlæg átt, 5-10 m/s og skúrir eða él, en þurrt NA-lands. Suðaustan 8-13 og rigning vestanlands um kvöldið. Hiti kringum frostmark.
Á sunnudag:
Sunnanátt og vætusamt, en þurrt að kalla NA-lands. Hiti 1 til 7 stig.
Á mánudag:
Suðlæg átt, 8-15 og rigning eða slydda. Hiti 0 til 5 stig.
Á þriðjudag:
Suðvestan 5-10. Slydduél S- og V-lands. Hiti kringum frostmark.
Á miðvikudag:
Suðvestan 10-18 og éljagangur S- og V-lands. Frost 0 til 8 stig. Gildir frá: 24 Feb 2012 12:00:00 GMT Gildir til: 29 Feb 2012 12:00:00 GMT




