Landsmót 2011

Úrslit úr forkeppni barnaflokks

27.06.2011
Forkeppni barnaflokks er nú lokið. Krakkarnir voru gríðarlega vel ríðandi
og áttu mörg hver sérlega góðar sýningar. Efst er Glódís Rún Sigurðardóttir Ljúf á Kamban frá Húsavík með 8,70, önnur Birta Ingadóttir Andvara á Frey frá Langholti II með 8,56 og þriðji Viktor Aron Adolfsson á Leik frá Miðhjáleigu með 8,54.
[...Meira]
Landsmót 2011

Fjölmennur knapafundur

25.06.2011
Já, það er óhætt að segja að knapafundir á Landsmótum séu vel sóttir. Hátt í fjögur hundruð manns sóttu knapafund barna og unglinga um tíuleytið í morgun. Þar fór Sigurður Emil Ævarsson mótsstjóri yfir helstu atriði er snúa að keppninni eins og aðkomu keppanda að braut, fótaskoðun eftir keppni, heilbrigðisskoðanir keppnishrossa og fleira í þessum dúr.
[...Meira]

Ráslistar Landsmóts 2011

24.06.2011
Nú eru aðeins tveir dagar í að langþráð Landsmót hestamana hefjist á Vindheimamelum í Skagafirði. Uppfærðir og réttir ráslistar eru nú klárir fyrir mótið.
 
[...Meira]
Landsmót 2011

Mikið “aksjón” - myndir

24.06.2011
Það er mikið um að vera hér á Vindheimamelum í Skagafirði í dag. Knapar eru á fullu að þjálfa gæðinga sína og koma sér fyrir á tjaldsvæðunum.  Fulltrúi Landsmóts rölti um glæsilegt mótssvæðið og tók púlsinn á fólki í dag.
[...Meira]
Landsmót 2011

Sýningarröð ræktunarbúa

22.06.2011
Umsjónarmenn ræktunarbúa á Landsmótinu hafa dregið í sýningarröð þeirra á mótinu en sýning þeirra verður á föstudagskvöldinu 1. júlí milli kl. 20:00 og 21:00. Ellefu hrossaræktarbú taka þátt í sýningunni og sýna okkur það besta úr þeirra ræktun. Sérstök umfjöllun verður í mótsskránni fyrir hvert og eitt þessara búa.
[...Meira]
Landsmót 2011

Æfingatímar á Landsmóti

22.06.2011
Æfingatímum hestamannafélaganna á keppnisvellinum á Vindheimamelum hefur nú verið úthlutað. Þau félög sem hafa 3 fulltrúa eða fleiri fá aukaæfingatíma á fimmtudeginum 23.júní.
[...Meira]
Landsmót 2011

Uppfærðir stöðulistar

22.06.2011
Að gefnu tilefni eru stöðulistar Landsmóts í tölti, 100m skeiði, 150m skeiði og 250m skeiði birtir aftur. Það skal áréttað að í tölti og 100m skeiði er um að ræða íþróttakeppni þar sem árangur parsins, knapa og hests, gildir.
[...Meira]
Landsmót 2011

Landsmót í beinni á Netinu

21.06.2011
Hestaáhugafólk getur nú í fyrsta sinn fylgst með Landsmóti á netinu.
Innlendir og erlendir áhugamenn um íslenska hestinn og hestaíþróttir geta nú tryggt sér í áskrift aðgang að beinum útsendingum frá Landsmóti hestamanna alla keppnisdaga mótsins.
[...Meira]