Lífstölt Harðar 2012, úrslit

25.03.2012
Frábæru Lífstöltsmóti kvenna lauk í gær í reiðhöll hestamannafélagsins Harðar.
Mótið er haldið til styrktar Lífs og safnaðist  tæplega 1.200.000 milljón króna.
Lífstöltsnefndin þakkar öllum þeim aðilum sem komu að mótinu, dómurum, skemmtikröftum og starfsmönnum og vert er að taka fram að allir gáfu vinnu sína til mótsins.
[...Meira]

Fjölnir Þorgeirsson keyptur á 10 þúsund

25.03.2012
Töltmót hestamannafélagsins Harðar, Lífstöltið, var haldið í gær. Allur ágóði af mótinu rennur til Lífs, styrktarfélags kvennadeildar Landsspítalans. „Þetta var frábær dagur og gekk ofsalega vel,“segir Line Nörgaard, formaður fjáröflunarnefndar Lífstölts.
[...Meira]

Veikindi ekki vegna mengunar

25.03.2012
Veikindi hrossa á bænum Kúludalsá í Hvalfirði eru ekki af völdum mengunar iðjuveranna á Grundartanga, er niðurstaða rannsóknar Matvælastofnunar og Tilraunastöðvarinnar á Keldum. Veikindi hrossanna má rekja til efnaskiptaröskunar.
[...Meira]

Ölvaður á hestbaki

Hrækti blóði upp í þann sem reyndi að hjálpa

24.03.2012
Rétt rúmlega eitt í nótt fékk lögreglan tilkynningu um ölvaðan mann á hesti á Vesturlandsvegi við Öskju. Maðurinn hafði dottið af baki og er vegfarandi ætlað að aðstoða hann hrækti hann blóði á þann sem vildi aðstoða.
[...Meira]

Úrtaka fyrir Allra sterkustu í kvöld

Ráslistar

24.03.2012
Úrtakan fyrir Allra sterkustu verður kl. 20:00 í kvöld í Skautahöllinni í Laugardal. Góð þátttaka er í úrtökunni og greinilega mikill áhugi fyrir því að komast á ísinn um aðra helgi.
[...Meira]

Barkamótið 2012

Ráslistar og dagskrá

24.03.2012
Barkamótið í Reiðhöllinni í Víðidal verður haldið sunnudaginn 25.mars og hefst kl. 16.00 á flokki 17 ára og yngri.Barki er umboðsaðili Marstalls fóðurs á Íslandi og gefur öll verðlaun mótsins sem eru sannarlega glæsileg. Í opnum flokki og flokki áhugamanna hlýtur sigurvegarinn 30.000 kr í verðlaun, auk Marstalls fóðurs og verðlaunagrips.
[...Meira]

Lífstöltið hefst í dag klukkan 10.00

Dagskrá

24.03.2012
Í dag laugardag fer fram í reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ Lífstöltið sem er góðgerðarmót til styrktar Lífi, kvennadeild LSH. Þeir sem ekki eiga kost á að taka þátt í mótinu né koma á staðinn geta lagt fé til styrktar kvennadeildinni inn á reikning 0549-26-50169 kt 650169-4259.
[...Meira]

Skeiðmót - 150m skeið og gæðingaskeið haldið að Ármóti á Rángárvöllum

23.03.2012
Spennan er gríðarleg í Meistaradeildinni hart er barist á toppnum, það geta orðið miklar sviftingar eftir næsta mót sem haldið verður á Ármóti næstkomandi laugardag 24 mars og byrjar kl 12:00.
[...Meira]

Styttist í Stóðhestaveislur!

23.03.2012
Hin árlega stórsýning stóðhestanna, Stóðhestaveislan, verður haldin á tveimur stöðum líkt og í fyrra, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki lau. 31. mars nk. og í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli lau. 7.apríl nk. Tugir stóðhesta munu koma fram á hvorri sýningu fyrir sig, bæði yngri og eldri hestar, stórstjörnur og nýstirni í bland.
[...Meira]

Langar þig á Youth Cup?

23.03.2012
Ef þú ert á aldrinum 14-17 ára þá er FEIF Youth Cup kjörið tækifæri fyrir þig til að kynnast hestakrökkum frá öðrum löndum og taka þátt í alvöru keppni á erlendri grundu.
[...Meira]

Karlatölt Andvara í dag

23.03.2012
Karlatölt Andvara verður haldið í dag klukkan 17.30 í reiðhöll Andvara. Dagskrá og ráslistar eru hér meðfylgjandi.
[...Meira]

Skeiðmót Meistaradeildarinnar

Ráslistar

22.03.2012
Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum fer fram að Ármóti núna á laugardaginn klukkan 12:00. Gera má ráð fyrir harðri keppni í báðum greinum þar sem margir sterkir hestar eru skráðir til leiks.
[...Meira]

Verður þú ein(n) þeirra ALLRA STERKUSTU?

Úrtaka næstkomandi laugardag

22.03.2012
Úrtaka fyrir Ístöltið – þeir allra sterkustu verður haldin laugardaginn 24. mars og hefst hún kl. 20:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Síðasti skráningardagur er í dag, fimmtudaginn 22. mars og er tekið við skráningum á netfangið hilda@landsmot.is fram til kl. 23:59 í kvöld!
[...Meira]

LÍFS-tölt í þágu kvennadeildar Landspítalans

„Brjóstamjólkurreið“

22.03.2012
Tólf konur í Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ undirbúa nú töltmót kvenna sem nefnist LÍFS-töltið og hefst kl. 10.00 á laugardaginn kemur í reiðhöll Harðar.
[...Meira]

„Þeir allra sterkustu“ – úrtaka

21.03.2012
Nú er tími ístöltanna en nýlokið mót „Svellkaldra kvenna“ var allt hið glæsilegasta, enda hestakosturinn frábær. Úrtaka fyrir ístöltið „Þeir allra sterkustu“ verður haldinn laugardaginn 24. mars kl. 20:00 í Skautahöllinni í Laugardal.
[...Meira]

Skráning á Barkamótið í kvöld

21.03.2012
Mikil og góð stemmning er fyrir Barkamótinu sem fram fer í Reiðhöllinni í Víðidal á sunnudaginn. Mótið er opið töltmót og hafa undanfarin ár margir af betri hestum landsins att kappi um verðlaunafé sem Barki ehf. veitir og einnig Marstall fóðurbætir sem Barki er umboðsaðili fyrir.
[...Meira]

Segir illa farið með útigangshross

20.03.2012
Sigurður Sigurðarson, fyrrverandi yfirdýralæknir, segir það óbrúklega meðferð á skepnum að láta útigangshross híma úti allan veturinn án þess að geta leitað skjóls. Sumum sé ekki einu sinni gefið. Almenningur verði að láta sig málið varða, því eftirlitsstofnanir hafi brugðist.
[...Meira]

Skeiðmót á laugardag í Meistaradeildinni

Haldið í Ármóti

20.03.2012
Næsta laugardag fer fram Skeiðmót Meistaradeildar í hestaíþróttum en þá verður keppt í 150m skeiði og gæðingaskeiði. Mótið fer fram að Ármóti og verður mikið um dýrðir þar á laugardaginn.
[...Meira]

Féll af baki og dróst á eftir hestinum

20.03.2012
Karlmaður, sem var að prófa reiðhest við hesthúsahverfið að Vatnsenda um átta leitið í gærkvöldi, slasaðist þegar hann féll af baki. Það gerðist þegar hesturinn fældist skyndilega og maðurinn missti stjórn á honum.
[...Meira]

Karlatölt Andvara 23. mars

19.03.2012
Opið Karlatölt Andvara 23. mars Karlatöltið fer fram í reiðhöll Andvara föstudaginn 23. mars Skráning er Þriðjudaginn 20. mars kl. 20:00 ? 22:00 í félagsheimilinu. Einnig hægt að skrá í síma 893-4425, 660-1813 og 896-8707 gegn því að gefa upp Vísakortanúmer fyrir skráningargjöldunum.
[...Meira]