Meistaradeild 2012 - Nú er það Tölt

Ráslistar

22.02.2012
Þá er orðið ljóst hvaða hestum knapar tefla fram annað kvöld klukkan 19:30 þegar keppt verður í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Að venju fer keppnin fram í Ölfushöllinni, Ingólfshvoli.
[...Meira]

KS deildin í kvöld - Fjórgangur

Bein útsending

22.02.2012
Keppt verður í fjórgangi í KS deildinni í kvöld og hefst hún klukkan 20.00. Fyrir þá sem ekki komast á keppnina þá er hún send beint á netinu. Meðfylgjandi er ráslisti.
[...Meira]

World Toelt haldið næstu helgi

22.02.2012
World Toelt verður haldið í Óðinsvéum í Danaveldi um næstu helgi. Það er óhætt að segja að þarna komi saman þeir allra sterkustu, bæði knapar og hross. Meðfylgjandi eru ráslistar mótsins.
[...Meira]

Siggi Matt og Edda Rún taka aftur við Reiðskóla Reykjavíkur

21.02.2012
Nú á haustdögum yfirtókum við aftur reksturinn á Reiðskóla Reykjavíkur. Við hófum starfsemi skólans árið 2001 en seldum hann frá okkur vorið 2010 en nú höfum við yfirtekið reksturinn aftur. Þetta kemur fram á vef Reiðskóla Reikjavíkur.
[...Meira]
Fréttatilkynning

Iceland Express LM og LH starfa saman næstu tvö árin

21.02.2012
Iceland Express, Landssamband hestamannafélaga (LH) og Landsmót hestamanna (LM) hafa skrifað  undir samstarfssamning og stuðning Iceland Express við LH og LM næstu tvö árin.
[...Meira]

Páll Óskar og Sigríður Klingenberg á Kvennakvöldi Fáks

21.02.2012
Görgjös, glamor og gleði verða á Kvennakvöldi Fáks laugardaginn 3. mars nk. Sigríður Klingenberg verður veislustjóri og svo mun Diskókóngur Íslands, Páll Óskar, taka við og stjórna dúndrandi diskótónlist fram á rauða nótt.
[...Meira]

Meistaradeild 2012 tölt á fimmtudag

Forsala aðgöngumiða hafin

21.02.2012
Á fimmtudaginn klukkan 19:30 verður keppt í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum. Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Top Reiter og Líflandi og verða miðar komnir seinna í dag í Baldvin og Þorvald á Selfossi.
[...Meira]

Myndbönd frá Bautatölti 2012

21.02.2012
Upptökur frá Bautatöltinu eru nú komnar á netið. Það var Þórir Ó. Tryggvason sem sá um upptökur og Hákon I. Þórisson sem sá um klippingar.
[...Meira]

Úrslit frá fyrsta vetrarmóti Smára

21.02.2012
Fyrsta vetrarmót Smára var haldið í frábæru veðri laugardaginn 18 febrúar. Ágætis þáttaka var á mótinu og hestakostur lofar góðu á komandi vetri. Myndir frá mótinu má finna inn á www.smari.is eða á facebook síðu félagsins. Minnum svo á næsta mót sem haldið verður laugardaginn 17 mars.
[...Meira]

Ekki missa af keppni þeirra bestu á Norðurlandi.

KS Deildin - ráslisti fjórgangur

21.02.2012
Þá er komið að því. Fyrsta keppniskvöldið í KS-deildinni er á morgun, miðvikudaginn 22.febrúar og verður haldin í Svaðastaðahöllinni og hefst keppnin kl:20.
[...Meira]

Úrslit frá vetrarleikum Fáks

20.02.2012
Geysigóð þátttaka var á fyrstu vetrarleikum Fáks sem fram fóru á laugardaginn en vel á annað hundrað keppendur öttu kappi í blíðskapar vetrarveðri.
[...Meira]

Úrslit frá Bleika töltmótinu

20.02.2012
Drottningar í bleiku svifu um reiðhallarsalinn á glæsilegu tölti og öttu kappi í Bleika töltmótinu. Mótið er haldið af Fákskonum og rennur öll innkoman beint til Krabbameinsfélagsins til rannsóknar á brjóstakrabbameini.
[...Meira]

Keppnisnámskeið með Sylvíu Sigurbjörnsdóttur

20.02.2012
Þetta námskeið mun veita góðan undirbúning fyrir komandi keppni og einstakt tækifæri til þess að byggja bæði hest og knapa upp fyrir væntanlega sigra á brautinni.  Kennt verður á föstudögum í reiðhöll  Gusts í Glaðheimum og með vorinu munu tímarnir færast út á keppnisvöllin (10 tímar).
[...Meira]

Opið töltmót í Mánahöllinni

Haldið 10. mars

20.02.2012
Hestamannfélagið Máni ætlar að halda Opið töltmót í Mánahöllinni laugardaginn 10  mars og er mótið ætlað fyrir 17 ára og eldri.
[...Meira]

Úrslit fyrsta vetrarmóts Loga og Trausta

20.02.2012
Fyrsta vetrarmót Loga og Trausta var haldið í gær laugardaginn 18. febrúar. Þrátt fyrir kuldann var veðrið hið besta. Úrslitin í fullorðinsflokki voru spennandi enda margir góðir hestar. Efstur í barnaflokki var Natan Morthens á Spóni frá Hrosshaga.
[...Meira]

Mótshaldarinn sigraði Bautamótið

19.02.2012
Guðmundur Karl Tryggvason mótshaldari Bautamótsins bar sigur úr býtum á opna Bautamótinu í tölti sem fram fór í gærkveldi. Þetta kemur fram á vefnum fax.is
[...Meira]

Úrslit karlatölts Harðar

19.02.2012
Karlatölt Harðar var haldið í gær og tókst það með ágætum. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
[...Meira]

Karlatölt Harðar haldið í dag Laugardag klukkan 14.00

18.02.2012
Karlatölt Harðar verður haldið í dag laugardag og hefst klukkan kl 14:00. Keppni hefst á forkeppni í tölti ll flokk. Meðfylgjandi eru ráslistar og dagskrá.
[...Meira]

Ísólfur sigraði fjórganginn í Húnvetnsku liðakeppninni

18.02.2012
Ísólfur Líndal sigraði 1. flokkinn í Húnvetnsku liðakeppninni sem hófst í kvöld á fjórgangi. Ísólfur á Kristófer frá Hjaltastaðahvammi og Artemisia Bertus á Þyt frá Húsavík voru jöfn eftir forkeppnina en Ísólfur hafði betur í úrslitunum og Artemisia varð að sætta sig við annað sætið.
[...Meira]

Fyrsta Landsbankamót vetrarins hjá Sörla

- Opið öllum

17.02.2012
Fyrsta Landsbankamót vetrarins verður haldið þann 25. febrúar, kl.13:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Keppt verður í tölti á beinni braut. Allir keppendur í sama flokki eru saman á vellinum. Þeir ríða hver á eftir öðrum til dóms. Sýna skal hægt tölt aðra leið og frjálsa ferð hina, eftir fyrirmælum þular.
[...Meira]